Skólastjórnendur hafa tekið sig vel út síðustu tvo daga þegar þeir hafa séð um matarskömmtun til nemenda og starfsfólk í forföllum þeirra sem alla jafna sjá um að elda og reiða fram hollan og góðan mat hér í Glerárskóla.
Undanfarna tvo daga hefur matur verið keyptur frá eldhúsi út í bæ en vonir standa til þess að okkar ágæta eldhúsfólk losni úr sóttkví í dag og þau komi flest til starfa á morgun.