Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Starfsdagur mánudaginn 16. mars

Eins og komið hefur fram  í dag hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem fela m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda.

Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að mánudaginn 16. mars verði starfsdagur í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar svo stjórnendur og starfsfólk geti skipulagt skólastarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til. Það sama á við um Frístund sem verður þá lokuð á mánudaginn.

Foreldrar leik- og grunnskólabarna eru beðnir að fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu um helgina og á mánudaginn m.a. á heimasíðu Akureyrarbæjar og heimasíðum grunn- og leikskóla.