Í morgun fór fram árleg spurningakeppni miðstigs. Mikill keppnisandi var meðal liðanna og hart tekist á, eins og ávallt. Það fór þó svo að 7. bekkur hafði 6. JIE eftir jafna og æsispennandi keppni sem endaði í bráðabana. Í þriðja sæti var 5. bekkur og í því fjórða 6. TLV.
Föstudaginn 16. apríl var einnig haldið íþróttamót miðstigs. Þar kepptu 6 úr hverjum bekk í þrautabraut á tíma. Þar vann 6. TLV upp gott forskot 7. bekkjar og fór með sigur af hólmi. Eftir þrautabrautina kepptu bekkirnir í bandýi. Mikil stemning var á meðal nemenda og gaman að svona uppbrotum í skólastarfinu.