Það var mikil tilhlökkun hjá krökkunum í 7. bekk þegar þeir mættu í skólann í morgun með farangur fyrir vikuna. Fram undan eru ævintýralegir dagar í skólabúðunum að Reykjum í Hrútafirði þar sem dagskráin er full af spennandi verkefnum og ævintýrin eru á hverju strái.
MFÍ hefur umsjón með rekstri Skólabúðanna á Reykjum í Hrútafirði. Árlega heimsækja um 3.200 nemendur í 7. bekk af öllu landinu búðirnar og dvelja þar frá mánudegi til fimmtudags. Í búðunum fá nemendur tækifæri til þess að efla leiðtogahæfni og sjálfsmynd sína og vinna með styrkleika sína.