Nemendur Glerárskóla úr öðrum-, þriðja- og fjórða bekk tóku sig til í morgun og gengu niður í Hof til að horfa á leikritið „Sögur af draugnum Reyra.“
Um er að ræða tónlistarleikhús þar sem Draugurinn Reyri fer með áhorfendum á vit löngu látinna tónskálda og kynnir áhorfendur fyrir tónlist þeirra.
Allir skemmtu sér konunglega og nutu leiksýningarinnar, bæði þess sjónræna og tónlistarinnar.