Á þriðjudag og fimmtudag var skólaþing í Glerárskóla þar sem markmiðið var að vinna að nýjum umgengnissáttmála fyrir skólann. Nemendur og starfsmenn unnu í blönduðum hópum með hópstjórum af unglingastigi. Eftir góðar og gagnlegar umræður var síðan kosið rafrænt um þau atriði sem nemendum þótti helst eiga heima í nýjum umgengnissáttmála, sem efla mundi skólabraginn. Nemendur komu síðan í íþróttasal þar sem birtar voru niðurstöður kosninganna á stórum skjá . Í leiðinni kom Guðmundur Sigurðsson frá Vistorku og kynnti og ræddi um orkunýtingu, matarsóun og vistvæna bæinn Akureyri. Eftir þetta skemmtilega og vel heppnaða þing var boðið upp á hressingu á göngum skólans.