Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Skólastarfið undirbúið – Skólasetning 24. ágúst

Starfsmenn Glerárskóla voru boðnir velkomnir til vinnu í morgun en nú eru allir mættir eftir sumarleyfi og lagstir á eitt við að undirbúa skólastarf vetrarins. Skólinn verður settur mánudaginn 24. ágúst 2020 í íþróttasal skólans.

Vegna aðstæðna í samfélaginu er forráðamönnum ekki boðið á setninguna að þessu sinni.

Skólasetningin sem verður sem hér segir:

2. til 4. bekkur kl. 9:00
5. til 7. bekkur kl. 10:00
8. til 10. bekkur kl. 11:00

Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar verða boðaðir til viðtals þann 24. ágúst.

Að setningu lokinni fara nemendur með umsjónarkennurum í stofur og fá upplýsingar um skólastarfið.

Skólastarf hefst þriðjudaginn 25. ágúst 2020 samkvæmt stundaskrá.