Glerárskóli

Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Facebook síða Glerárskóla

Skólaslit Glerárskóla vorið 2026

Skólaslit í Glerárskóla fara fram þriðjudaginn 9. júní 2026. Nemendur mæta á mismunandi tímum eftir bekkjum og hefst sumarfrí að loknum skólaslitum.

Nemendur í 1.–7. bekk mæta í heimastofur þar sem umsjónarkennarar taka á móti þeim. Þaðan verður gengið í röð í íþróttasal eða út í gryfjuna austan við skólann, eftir því sem veður leyfir, þar sem formleg skólaslit fara fram. Að athöfn lokinni fara nemendur aftur í heimastofur þar sem vitnisburður er afhentur. 

Skólaslit 8.–10. bekkjar verða í Glerárkirkju sama dag kl. 17:00. Að lokinni athöfn er 10. bekk, ásamt forráðamönnum og starfsfólki, boðið í kaffi og kökur í safnaðarheimili kirkjunnar.

Tímasetningar skólaslita:

  • Kl. 8:15 – 1.–4. bekkur
  • Kl. 9:15 – 5.–7. bekkur
  • Kl. 17:00 – 8.–10. bekkur