Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Skólaslit Glerárskóla 2016

GlerlogoSkólaslit Glerárskóla vorið 2016 verða föstudaginn 3. júní.

 

1.– 7. bekkur kl. 13:15
Nemendur eru í umsjónarstofum til kl. 13:15 og koma þá með umsjónarkennara í íþróttasal þar sem fram fara formleg skólaslit á starfi vetrarins. Eftir slitin fara nemendur með umsjónarkennara í stofur þar sem fram fer kveðjustund og afhending námsmats. Skólaslitum verður lokið kl. 14:15

 

8. – 10. bekkur kl. 17:00 í Glerárkirkju
Hátíðarstund sem hefst stundvíslega kl. 17:00 þar sem allir mæta spariklæddir. Nemendur 8. og 9. bekkjar fá afhent námsmat og 10. bekkingar verða útskrifaðir formlega. Að lokinni athöfn eru veitingar fyrir 10. bekkinga, forráðamenn þeirra og starfsfólk skólans í boði 10. bekkjar. Forráðamenn 9. bekkjar standa kaffi-vaktina.