Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Skólaslit

Nemendur á yngsta- og miðstigi Glerárskóla mættu til skólaslita í morgun, á sitt hvora athöfnina í íþróttahúsi Glerárskóla því ekki viðraði til skólaslita utanhúss. Tómas Lárus Vilbergsson, deildarstjóri og staðgengill skólastjóra, stjórnaði athöfnunum. Hann lætur af störfum við lok þessa skólaárs. Við þökkum Tómasi Lárusi kærlega fyrir hans góðu störf fyrir Glerárskóla

Eins og hefðin segir til um mættu nemendur á unglingastigi á sín skólaslit síðdegis í Glerárkirkju þar sem Eyrún skólastjóri stjórnaði athöfninni og brautskráði 38 nemendur úr 10 bekk, en þetta var í 116. skiptið sem skóla í Glerárþorpi var slitið. Athöfnin var hátíðleg með léttu og mjög skemmtilegu yfirbragði.

Í ávarpi sínu fór Eyrún Skúladóttir skólastjóri yfir liðið skólaár og ræddi sérstaklega um nýlegar endurbætur á Glerárskóla sem mynda frábæra umgjörð fyrir faglegt starf skólans til framtíðar.

Bríet Björk Pálsdóttir, sem brautskráðist frá Glerárskóla fyrir fimm árum, flutti ávarp þar sem hvatti nemendur til að forðast kyrrstöðu en fylgja draumum sínum og grípa þau tækifæri sem þeim stendur til boða.

Guðrún Hanna Hjartardóttir flutti ávarp flutti líflegt ávarp fyrir hönd nemendanna í tíunda bekk þar sem hún rakti skólagöngu síðustu ára og tilfinninguna sem bærist í brjóstum 10. bekkinga við útskriftina. „Við erum þegar farin að sakna skólans,“ sagði hún, „og ef maður saknar einhvers, þá var það gott.“

Við skólaslitin hlaut Helga Maren Helgadóttir viðurkenningu fyrir bestan námsárangur í 8. bekk, Una Björk Viðarsdóttir fékk viðurkenningu fyrir bestan námsárangur í 9. bekk og þær Karen Hulda Hrafnsdóttir, Emelía Rán Eiðsdóttir og Guðný Rósa Guðmundsdóttir. fyrir bestan námsárangur í 10. bekk. Guðný Rósa hlaut einnig viðurkenningu fyrir afburða árangur í dönsku.

Valdís Sigríður Gissurardóttir fékk viðurkenningu fyrir framfarir í námi og leiðtogahæfni, Bragi Freyr Eiríksson fékk viðurkenningu fyrir að vera sérlega góður félagi og Hannibal Máni K. Guðmundsson fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi hugarfar og að vera góð fyrirmynd.

Bryddað var upp á nýjung við skólaslitin í ár, en það var þegar umsjónarkennarar 10. bekkjar ávörpuðu hópinn og fóru á kostum í lýsingum sínum á úrskriftarhópnum.

Skólaslit eru ljúfsár. Við kvöddum nemendur sem luku 10. bekk, en margir þeirra hafa verið með okkur í heilan áratug. Við söknum við þeirra og óskum þeim velgengni í lífinu og vonum að krakkarnir minnist skólans síns með gleði og hlýju.