Glerárskóli

Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00. Í fríum nemenda og starfsfólks er skrifstofa lokuð.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Skólasetning og fyrsti skóladagur

Glerárskóli verður settur þriðjudaginn 22. ágúst og kennsla hefst samkvæmt stundatöflu miðvikudaginn 23. ágúst.
Skólinn verður settur í íþróttasal skólans eða á körfuboltavellinum norðan skólans (fer eftir veðri). Skólasetningin verður sem hér segir:
2. – 4. bekkur kl. 9:00
5. – 7. bekkur kl. 10:00
8. – 10. bekkur kl. 11:00

Að setningu lokinni fara nemendur í raðir og arka síðan með umsjónarkennurum í stofur og fá upplýsingar um skólastarfið.
Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar verða boðaðir til viðtals þann 22. ágúst 2023. Það er stórt skref fyrir hvert barn að byrja í skóla og það er einnig að ýmsu að hyggja fyrir forráðamenn. Við bendum því á bæklinginn Að byrja í grunnskóla, sem Akureyrarbær hefur gefið út og aðgengilegur á heimasíðu skólans.