Skólinn verður settur mánudaginn 22. ágúst í íþróttasal Glerárskóla samkvæmt eftirfarandi:
Kl. 9:00 2. – 7. bekkur
Kl. 10:00 8. – 10. bekkur
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 23. ágúst.
Nemendur í 1. bekk verða boðaðir sérstaklega til viðtals dagana 22. og 23. ágúst 2016.
Fyrsti skóladagur 1. bekkjar samkvæmt stundaskrá er miðvikudaginn 24. ágúst.
Frístund – staðfesting fyrir skólaárið 2016-2017
Staðfesting á skráningu fer fram mánudaginn 15. ágúst frá kl. 10:00 – 15:00
Allir foreldrar barna í 1. -4. bekk sem skráðu börn sín í vor og ætla að nýta sér þjónustu frístundar næsta skólaár þurfa að staðfesta skráningu með því að skrifa undir dvalarsamning. Heiða umsjónarmaður mun taka á móti foreldrum í Sólgarði (frístund) á A-gangi.
Kær kveðja frá starfsfólki Glerárskóla