Skólasafn – Upplýsinga-og tækniver
Skólasafnið er til húsa í c-álmu skólans. Þar er að finna úrval fræði- og skáldrita til útlána fyrir nemendur og starfsfólk skólans. Einnig er þar að finna tímarit, myndefni, hljóðbækur, spil og ýmiss konar kennslugögn. Tölvur eru til taks fyrir nemendur í frímínútum og til verkefnavinnu.
Almennur útlánstími bóka er tvær vikur en kennslubækur eru lánaðar nemendum í annarláni og gögn til kennara í vetrarláni eða eftir samkomulagi.
Útlánstímar eru alla virka daga frá klukkan 8.15 til 14.00. Lokað er einstaka tíma þegar kennsla fer fram á safninu.
Á skólasafninu fer fram fjölbreytt vinna nemenda og kennara. Nemendur fá aðstoð við upplýsingaleit og vinnu að verkefnum í samráði við fagkennara. Sögustundir eru haldnar fyrir yngstu nemendurna og mikið er lagt upp úr lestrarörvun og lestrarhvetjandi umhverfi.
Bókmenntakynningar ætlaðar nemendum eru í desember þar sem helstu jólabækur eru kynntar. Reynt er eftir föngum að fá rithöfunda í heimsókn til þess að lesa upp úr verkum sínum.
Markmið með kennslu og störfum á skólasafni eru að:
✓ Örva áhuga nemenda á lestri fagurbókmennta og fræðirita.
✓ Þjálfa lestrarfærni nemenda.
✓ Veita leiðbeiningar um það hvernig nýta megi safnkost.
✓ Þjálfa nemendur í sjálfstæðum vinnubrögðum.
✓ Æfa nemendur í að vinna úr heimildum, draga ályktanir og gera munnlega og skriflega grein fyrir hugmyndum sínum.
✓ Efla skilning á tækni og hvernig nýta má tækni í skólastarfi. Safnkosturinn er tengdur við Landskerfi bókasafna eða Leitir.is.
Starfsmaður skólasafns/upplýsinga- og tæknivers skólans er Þorsteinn G. Gunnarsson.