Skólalífið er komið á fullt að loknu páskaleyfi. Verkefnavinnan er tekin við og mörgum þykir dálítið sport í að læra á göngunum.
Þótt það hafi verið umhleypingasamt að undanförnu finnum við að það er vor í lofti og skólaárið styttist. Það skiptir því miklu máli að nýta tímann vel, taka vel eftir í tímum, læra og alls ekki gleyma heimalestrinum. Hann er mjög mikilvægur.



