Íþróttahúsið verður upptekið í næstu viku vegna árshátíðar. Allir íþróttatímar verða því úti eða í Boganum. Nemendur eiga því að mæta í fatnaði og viðeigandi skóbúnaði til íþróttaiðkunar utandyra. Sundtímar verða samkvæmt stundaskrá að undanskildum 3. bekk sem missir sinn sundtíma vegna samkomu í íþróttasal.



