Nemendur Glerárskóla keppa í Skólahreysti á morgun, miðvikudaginn 29. apríl. Keppnin fer fram í Íþróttahöllinni og hefst klukkan 20.00. Stemningin er yfirleitt mjög góð og við hvetjum alla til þess að koma á svæðið og upplifa hana. Húsið opnar klukkan 19.00. Þeir sem eiga ekki heimangengt geta horft á keppnina í beinni útsendingu á RÚV.
Áfram Glerárskóli.



