Glerárskóli

Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Facebook síða Glerárskóla

Skólahreysti og skólafríí

Nemendur Glerárskóla stóðu sig með afbrigðum vel og sigruðu í tveimur greinum, upphífingum og dýfum. Frammistaðan í hraðabrautinni þótti einnig eftirtektarverð. Á meðfylgjandi mynd má sjá keppnislið Glerárskóla sem náði næst bestum árangri grunnskólanna Akureyri.

Skólafrí
Á morgun (föstudag) er 1. maí , baráttudagur verkalýðsins. Þá er skólafrí. Við fáum því langa helgi og sjáumst aftur glöð og kát á mánudagsmorguninn þegar kennsla hefst á slaginu 8.15.