Á morgun, fimmtudaginn 13. maí, er skólafrí en þá er uppstigningardagur. Við fögnum frídeginum en ef til vill vita ekki allir hvað þetta undarlega orð „uppstigningardagur“ merkir.
Daginn ber ávallt upp á fimmtudag og er 40 dögum eftir páskadag og markar enda á þeim tíma sem Jesú spígsporaði á jörðunni eftir upprisuna á páskadag. Þetta langa orð sem mörgum finnst erfitt að bera fram og skijla merkir því að stíga upp, í merkingunni að stíga upp til himna.
Í mörgum málum, meðal annars í dönsku sem nemendur Glerárskóla læra, er orðið mun gegnsærra og skiljanlegra. Meðan við segjum uppstigningardagur segja Danir einfaldlega himmelfartsdag, eða himnafarardagur sem mörgum finnst betra en orðið sem við notum.
En það er sem sagt frí á morgun og við skulum öll njóta þess. Við sjáumst síðan á föstudaginn.



