„Þjóðlegar verur tölunni týna ef enginn vill þeim áhuga sýna,“ segir í upphafslagi leikverksins Skoffín og skringilmenni sem leikhópurinn Hnoðri í norðri flutti fyrir nemendur á miðstigi í morgun.
Verkið sem er eins konar gaman-hryllings ópera fjallar meðal annars um álfatrú og margs konar þjóðlegt efni sem mikilvægt er að gleymist ekki erli nútímans.
–
Næsta vika verður óvenjuleg hjá okkur í Glerárskóla. Á mánudaginn verður hefðbundinn skóladagur. Þriðjudagur og miðvikudagur eru þemadagar og þá lýkur skólastarfi kl. 12.00 en frístund verður opin fyrir þau börn sem eiga vistunartíma þessa daga. Fimmtudagurinn er sumardagurinn fyrsti og þá er skólafrí. Á föstudaginn er skipulagsdagur, þá er engin kennsla og frístund er lokuð.