Sýningin Tónatal var opnuð við hátíðlega athöfn í menningarhúsinu Hofi á sumardaginn fyrsta. Þar söng barnakór Akureyrarkirkju fimm lög sem tengjast vorinu og sumarkomunni. Lögin hljómuðu í myndmenntarstofu Glerárskóla og voru nemendum innblástur þegar þau sköpuðu myndverkin sem þar hanga.
Við hvetjum alla til þess að leggja leið sína í Hof og skoða sumarlegar, bjartar og fallegar myndir eftir nemendur Glerárskóla.