Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Skipulag Glerárskóla 3. – 6. nóvember 2020

Frá og með þriðjudeginum 3. nóvember 2020 og til og með föstudeginum 6. nóvember 2020  verður verður breytt skipulag í Glerárskóla.. Skipulagið er hugsað út frá góðum  sóttvörnum og í samræmi við þær takmarkanir sem 2 metra reglan krefst af okkur. 

8. – 10. bekkur: 

8. – 10. bekkur verður í fjarkennslu þessa fjóra daga og koma nánari upplýsingar til  nemenda og forráðamanna frá umsjónarkennurum. 

7. bekkur: 

7. bekkur verður í staðbundnum skóla annan hvern dag og í fjarkennslu hinn daginn.  Nemendur verða í stofum A5 og A7 og ganga inn um inngang á A-álmu kl. 8:15 – 12:00 

Enginn hádegismatur verður í boði þessa daga fyrir nemendur 7. bekkjar. Allar nánari upplýsingar koma frá umsjónarkennurum. 

5. – 6. bekkur: 

5. – 6. bekkur verða í staðbundnum skóla alla daga og koma inn um aðalinngang skólans. 5.  bekkur verður í stofum D2, D4, D6 og D8 en 6. bekkur verður í stofum D3, D5, D7 og D9.  Nemendur koma í skólann samkvæmt eftirfarandi: 

5. bekkur kl. 8:15 – 11:55 

6. bekkur kl. 8:20 – 12:00 

Enginn hádegismatur verður í boði þessa daga fyrir nemendur 5. – 6. bekkjar. 

Nemendur 5. – 7. bekkjar þurfa að hafa grímur á sér á leið inn í og út úr stofu og þurfa að  geyma grímurnar á borðinu sínu. 

Allar nánari upplýsingar koma frá umsjónarkennurum. 

1.-4. bekkur: 

1. – 4. bekkur verður með fullan skóladag og gengur um B-inngang sem hér segir:   

1. bekkur kl. 8:15 – 13:00 – þá tekur frístund við fyrir skráða 

 2. bekkur kl. 8:20 – 13:05 – þá tekur frístund við fyrir skráða 

 3. bekkur kl. 8:25 – 13:10 – þá tekur frístund við fyrir skráða 

 4. bekkur kl. 8:30 – 13:15 – engin frístund 

Boðið verður upp á hádegismat fyrir 1. – 4. bekk 

Frístund verður í kennslustofum nemenda í B-álmu og því verða nemendur í sama rýminu  allan daginn. 

Aðrar upplýsingar: 

Skólinn opnar kl. 8:15. 

Boðið verður upp á ávaxta- og mjólkuráskrift fyrir 1. – 7. bekk 

Íþrótta- og sundkennsla verður úti þessa daga. Nemendur þurfa því að koma í viðeigandi  klæðnaði.

Fjarvera nemenda á þessum tímum er á ábyrgð forráðamanna og ekki verður hægt að  tryggja námspakka heim. Óska þarf eftir leyfi fyrir nemendur í gegnum heimasíðu skólans  (rafrænt form). Ef nemendur eru veikir þarf að skrá það í InfoMentor. 

En nemendur finna einkenni kvefs, hita eða beinverkja óskum við eftir að þeir séu heima. Í lok vikunnar koma upplýsingar um framhald skólastarfs. 

Glerárskóli gerir sitt besta til að koma til móts við nemendur og í samvinnu við heimilin mun  okkur takast að komast yfir þennan hjall sem nú blasir við. Takk fyrir samstarfið. 

Allar nánari upplýsingar má fá hjá umsjónarkennurum og stjórnendum. 

Kær kveðja, 

stjórnendur Glerárskóla, Eyrún, Helga og Tómas Lárus.