Glerárskóli

Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Facebook síða Glerárskóla

Skemmtileg gjöf frá foreldrafélaginu

Þau Magnea Karen og Sævar Örn úr foreldrafélagi Glerárskóla komu færandi hendi nú í morgun. Þau voru með borð fyrir pokakast sem Sævar Örn smíðaði og foreldrafélagið færði skólanum að gjöf.

Næsta skref hjá okkur er að setja merki skólans á borðin og útbúa grjónapoka. Þá er allt tilbúið fyrir skemmtilegan leik.