Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Sjöundi bekkur á Reykjum

Það var spenningur og gleði í andlitum krakkanna í sjöunda bekk í morgun þegar þeir voru búnir að koma sér fyrir í rútunni sem ók að skólabúðunum að Reykjum í Hrútafirði.

Hópurinn dvelur við leik og störf að Reykjum fram á föstudag. Starfið í skólabúðunum beinist í öllum aðalatriðum að sömu markmiðum og starfið í almennum grunnskólum. Þar er lögð sérstök áhersla á eftirfarandi uppeldis- og félagsleg markmið og að því stefnt:

– að auka samstöðu og efla samvinnu milli kennara og nemenda
– að auka félagslega aðlögun nemenda
– að þroska sjálfstæði nemenda
– að nemendur fáist við áður óþekkt viðfangsefni
– að nemendur kynnist nýju umhverfi og ólíkum lífsmáta
– að örva löngun nemenda til að athuga og rannsaka umhverfið og komast að niðurstöðu
– að auka athyglisgáfu nemenda

Eitt af markmiðum skólabúðanna er að venja nemendur við að búa fjarri foreldrahúsum, sofa á ókunnum stað, sjá um sig, hafa reglu á fötum og farangri sínum og hirða herbergið sitt. Við þetta njóta nemendur tilsagnar kennara síns og starfsfólks skólabúðanna.

Við erum fullviss um að þetta gangi afar vel, eins og yfirleitt.