Um síðustu helgi var opnuð samsýning myndlistamanna og skólabarna í Ketilhúsinu.
Nemendur Glerárskóla taka þátt í sýningunni og á valhópur í myndlist grafíska hönnun á videospóluhulstrum sem staðsettar eru í hillum þegar komið er inn og nemendur 5. – 8. bekkja blómamyndir sem blasa við á veggnum á bak við ræðumenn sem settu sýninguna á opnunardaginn.
Það er áhugavert að skoða þessa sýningu og gaman fyrir nemendur að taka þátt í slíkum viðburðum.