Í gær var áhugaverður kynningarfundur í Háskólanum á Akureyri þar sem umfjöllunarefnið var Evrópusamstarf með börnum og ungmennum.
Í upphafi fundarins var streymt frá vefstofu Rannís um samstarfsverkefni í Erasmus+ en tilgangur fundarins var að fá kynningu á samstarfs- og styrktarmöguleikum á vegum Rannís og fá innsýn í verkefni sem nú þegar eru í gangi hjá Akureyrarbæ.
Á fundinum sögðu fjórir nemendur Glerárskóla, þær Rósa Signý Guðmundsdóttir, Edda Júlíana Jóhannsdóttir, Ísold Vera Viðarsdóttir og Rósa María Stefánsdóttir á eftirtektarverðan hátt frá ferð sinni til Sikileyjar á síðasta ári og þeim verkefnum sem þær unnu þar. Ferð þeirra var hluti af Erasmus+ verkefninu Be a Shield Around the World þar sem umhverfismál voru í brennidepli.