Nýtt skipulag Glerárskóla sem tekur mið af breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu, tekur gildi frá og með þriðjudeginum 17. mars. Forráðamenn nemenda hafa þegar fengið ítarlegt bréf með upplýsingum um breytingarnar og breytta umgengishætti í skólanum. Mikilvægt er að forráðamenn ræði skipulagið vel og vandlega við börnin sín því þau verða að fylgja því eftir í hvívetna. Við bendum líka á að skipulagið getur breyst og því verða allir að fylgjast vel með heimasíðu/fésbók og tilkynningum frá skólanum í tölvupósti. Bréfið má lesa hér.
Með bréfinu fylgdi félagsfærnisaga sem forráðamenn geta lesið fyrir börn sín.