Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00..

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Nú göngum við í skólann eða hjólum sem aldrei fyrr

Átakið „Göngum í skólann“ hefst hjá okkur i Glerárskóla á mánudaginn (8. september). Markmið átaksins er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan umhverfisvænan ferðamáta til og frá skóla, hvetja til aukinnar hreyfingar og fræða börn um ávinning reglulegrar hreyfingar.

Átakinu er ætlað að hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna en hreyfing vinnur m.a. gegn lífsstílstengdum sjúkdómum, stuðlar að streitulosun og betri sjálfsmynd. Einnig er markmiðið að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli. Einnig að draga úr umferð við skóla og stuðla að betra og hreinna lofti ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi. Um leið er verið að stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu „gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Nú er heldur betur tækifærið til þess að ræða þessi mál við börnin ykkar og fara yfir öruggustu leiðina í skólann með yngstu börnunum. Það er aldrei of varlega farið.

Í tilefni átaksins fengu allir nemendur skólans endurskinsmerki að gjöf frá samtökunum Heimili og skóli. Við þökkum gjöfina, enda er skammdegið farið að læðast að okkur. En munum að endurskinið gerir ekkert gagn nema við notum það!

Átakið stendur til 19. september 2025 og á meðan á því varir skrá kennarar hvernig krakkarnir koma í skólann, gangandi, hjólandi eða með bíl.

Nemendur Glerárskóla eru mjög duglegir að ganga eða hjóla í skólann og það sama á við um starfsfólk skólans. Næstu daga vonumst við að enn fleiri bætist í hópinn og gangi eða hjóli í skólann.