Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Nú er það svart!

Það er ansi dimmt á morgnanna þegar litlu fæturnir trítla í skólann. Snjóleysið og vætan gera það að verkum að skammdegið er allt að því svartara en svart.

Við viljum því árétta mikilvægi þess að börnin séu eins sýnileg og kostur er. Allir ættu að vera með endurskinsmerki og hjólin vel búin ljósum. Svo brýnum við fyrir börnunum að þau sýni aðgát og fari eftir umferðarreglunum.