Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00..

Facebook síða Glerárskóla

Nemendur og kennarar við störf í kóngsins Köben

Um þessar mundir eru fjórir nemendur og tveir kennarar í „Job Shadowing“ ferð á vegum Erasmus+ í Kaupmannahöfn. Þar heimsækja þau Højdevangens grunnskólans og fylgjast með starfinu þar.

Krakkarnir, þau Guðbjörg, Alvilda, Lárus og Aron taka þátt í skólastarfinu, auk þess sem þau heimsækja söfn og menningarlega staði og skoða sig um kóngsins Kaupmannahöfn. Meðan krakkarnir eru í skólanum ytra fylgjast kennararnir þær Ása Sigurðardóttir og  Elsa María Guðmundsdóttir með kollegum sínum ytra, kynna sér skólastarfið og koma heim með hugmyndir sem geta nýst okkur hér í Glerárskóla við að gera gott skólastarf enn betra.

Ferð eins og þessi eykur víðsýni og er  ómetanleg reynsla, bæði fyrir kennara og nemendur.

Á myndinni má sjá krakkana fyrir utan Højdevangens grunnskólann í Kaupmannahöfn.