Þeir nemendur í 6.-8. bekk sem taka þátt í Erasmus+ verkefninu „Be a Shield Around the World“ funduðu á dögunum með jafnöldrum sínum í samstarfsskólunum okkar í Danmörku, Austurríki, Rúmeníu, Ítalíu og Grikklandi. Fundirnir gengu mjög vel og nemendurnir ætla að halda áfram að hittast á eigin samfélagsmiðlum.
Um leið og kostur er verður farið með hópa nemenda í heimsóknir til þessara landa þar sem nemendur munu vinna saman að umhverfistengdum verkefnum. Þá er nú gott að hafa kynnst á fjarfundum og viðhaldið vinskap á samfélagsmiðlum.