Innkaupalistar (námsgagnalistar)
Akureyrarbær mun veita skólabörnum í grunnskólum bæjarins gjaldfrjáls námsgögn frá og með hausti 2017.
Í þessu felst að nemendum verði útvegað skólagögn þ.e. stílabækur, reikningsbækur, blýanta og tilheyrandi. Foreldrar þurfa áfram að útvega skólatösku, íþróttaföt, sundföt og heyrnartól fyrir tölvukennslu.
Námsgögnin verða geymd í skólunum og þurfa nemendur að nota sín eigin skriffæri þegar kemur að heimanámi.