Miðvikudaginn 10. febrúar 2021 er nemendum í Glerárskóla boðið í Hlíðarfjall.
Sumir fara á bretti, aðrir á svigskíði, enn aðrir á gönguskíði og svo mega nemendur taka með sér snjóþotur og sleða. Gönguferð verður í boði fyrir þá sem það kjósa.
Þeir sem ekki eiga búnað geta fengið hann lánaðan í Hlíðarfjalli. Ekki verður hægt að lána búnað til nemenda í 1.- 4. bekk.
Þeir nemendur sem eiga búnað geta ekki fengið lánaðan búnað í fjallinu.
Þær lyftur sem verða opnar eru: Töfrateppið, Hólabraut, Skálabraut og Hjallabraut. Aðrar lyftur fylgja hefðbundnum opnunartíma Hlíðarfjalls.
Lyftukortin gilda aðeins til kl. 12 þannig að þeir nemendur sem vilja vera áfram þurfa að hafa plastspjöld sem þau kaupa áfyllingu á eða nota eigin lyftukort. Einnig þarf að skila inn skíðabúnaðinum þegar skipulagðri dagskrá líkur þ.e. þegar rútur á vegum skólans fara heim. Ef nemendur ætla að verða eftir í Hlíðarfjalli verður að koma með samþykki frá foreldrum og þá eru nemendur á eigin vegum í Hlíðarfjalli.
Hádegismatur verður snæddur í skólanum.
Vakin er athygli á því að veður og færi geta breyst á skömmum tíma og verða allir að taka mið af því.
Mætingar:
1– 4. bekkur: Mæting í skóla kl. 08:15. Rúta í Hlíðarfjall kl. 08:40 og til baka kl.11:00, hádegismatur og síðan skólalok (frístund).
5 – 7. bekkur: Mæting í skóla kl. 08:15. Rúta fer í Hlíðarfjall kl. 08:30 og til baka kl.11:30, hádegismatur og síðan skólalok.
8 -10. bekkur: Mæting í skóla kl. 08:30. Rúta fer í Hlíðarfjall kl. 08:50 og til baka kl.12:00, hádegismatur og síðan skólalok.
Ef spurningar vakna má hafa samband við skólann í síma 461-2666.