Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00..

Facebook síða Glerárskóla

Nemandi Glerárskóla með tónverk á Upptaktinum

Freyja Rán Kristinsdóttir nemandi í fimmta bekk Glerárskóla á tónverk sem valið hefur verið til þátttöku í Upptaktinum, tónsköpunarverðlaunum barna og unglinga. Alls voru sjö verk eftir ung og upprennandi tónskáld, valin til þátttöku í Upptaktinum á Akureyri.

Höfundarnir, sem í þetta sinn eru á aldrinum 10-12 ára og allir frá Akureyri, hafa þegar hafið vinnuna við það að gera hugmynd að lagi með tónlistarkonunni Gretu Salóme, sem sér auk þess um útsetningu verkanna sjö fyrir hljómsveit.

Auk Freyju Ránar eiga  Lilja B. Ásgeirsdóttir, 10 ára úr Lundarskóla, Hákon Geir Snorrason. 12 ára úr Lundarskóla, Ólöf Birna Kristjánsdóttir, 11 ára úr Síðuskóla,  Ólöf Braga Ívarsdóttir,  10 ára úr Giljaskóla, Sandra Ósk Ragnarsdóttir Lieske,  12 ára úr Lundarskóla og Þorvaldur Adam Ásgeirsson, 10 ára úr Lundarskóla verk í keppninni.

Uppskeruhátíðin  verður sunnudaginn 19. apríl kl 17 þegar tónskáldin og aðstandendur þeirra hlýða á atvinnuhljóðfæraleikara flytja verkin á glæsilegum tónleikum í Menningarhúsinu Hofi.

Freyja Rán er þriðja frá hægri á meðfylgjandi mynd sem fengin er frá Menningarfélagi Akureyrar.