Nemendafélagið stendur fyrir náttfatadegi í Glerárskóla á morgun, fimmtudaginn 22. febrúar. Öll sem í skólanum eru, nemendur og starfsfólk, eru hvött til að koma í náttfötunum í skólann, en það skal tekið fram að bannað er að sofa í kennslustundum þótt nemendur séu í náttfötum 😊.