Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Námskynning í VMA

samuelSíðastliðinn þriðjudag fóru nemendur í 10. bekk í námskynningu í VMA ásamt Sigurjóni umsjónarkennara og Rakel námsráðgjafa. Mikið var skoðað og gekk heimsóknin mjög vel.

Nemendur gátu tekið þátt í getraun og svo skemmtilega vildi til að Samúel nemandi í 10. bekk vann spjaldtölvu. Óskar Ingi brautarstjóri rafiðngreina og Árný Þóra námsráðgjafi í VMA komu og færðu honum vinninginn fyrir hönd VMA.