Vegna innkaupa á námsgögnum fyrir nemendur í grunnskólum Akureyrar þá hefur Akureyrarbær ákveðið að útvega nemendum í grunnskólum bæjarins öll helstu námsgögn í byrjun skólaárs. Verkefnið er í vinnslu hjá Akureyrarbæ og ekki alveg ljóst að svo stöddu hvernig að þessu verður staðið né hve vel upphæðin sem verður lögð í verkefnið dugir. Ef sú staða kemur upp að eitthvað standi útaf þá verða upplýsingar um það sendar út síðar í ágústmánuði. Ljóst er að skólatöskur og íþrótta- og sundfatnað þurfa nemendur að koma með sjálfir og eins heyrnatól vegna tölvukennslu.