Þessir einbeittu og listrænu nemendur í Glerárskóla eru að leggja lokahönd á myndverk sem sýnd verða í menningarhúsinu Hofi og eru hluti af barnamenningarhátíð Akureyrar.
Sýningin verður opnuð á fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta og ber heitið Tónatal og er samstarfsverkefni barna sem flytja tónlist og skapa myndlist. Við opnum sýningarinnar syngur barnakór nokkur lög og á veggjum Hamragils í Hofi hanga myndverk sem börn í 4.-7. bekk Glerárskóla, unnu undir áhrifum tónlistarinnar þar sem þema laganna er vorkoma og sumar.