Fátt hressir meira en að ganga í skólann á fallegum haustmorgni, jafnvel þótt hitastigið sé rétt undir frostmarki eins og í morgun. Eftir hressandi göngu er dásamlegt að bresta í söng, enda léttir söngurinn andann og bætir geð. Það er nefnilega ekki hægt að syngja og vera fúll um leið.
Glerárskóli tekur nú þátt í átakinu Gengið í skólann. Átakið stendur yfir í tvær vikur og eru nemendur og starfsfólk hvatt til að koma gangandi eða hjólandi í skólann. Góð þátttaka í átakinu.
Ivan Mendez kom í heimsókn til okkar í morgun og stjórnaði söngsal í íþróttahúsinu þar sem el var tekið undir. Sungin voru fjögur lög sem nemendur í fyrsta bekk völdu.