Kennsla hófst á unglingastigi í gær og það eru töluverðar breytingar hjá krökkunum vegna fyrirhugaðra framkvæmda við A-álmu skólans, eins og við höfum þegar sagt frá. Kennslan fer fram í Rósenborg en nemendurnir fá far þangað með rútubílum frá Glerárskóla.
Það skiptir miklu máli að mæta á réttum tíma því rúturnar fara frá Glerárskóla á slaginu kl. 8:00 og kennslan hefst klukkan 8:10.