Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00..

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Markmiðum náð

Fátt er betra en setja sér markmið til að ná  árangri. Markmiðið eitt og sér dugar reyndar ekki, það þarf að vinna markvisst að markmiðinu og það gerðu krakkarnir í sjötta bekk síðustu vikurnar.

Í samvinnu við kennara sinn, Hönnu Rós Jónsdóttur, setti hvert og eitt þeirra sér markmið í lestri sem ætlunin var að ná í janúar.

Metnaður, keppnisskap og miklar æfingar, keyrðu krakkana áfram og svo fór að þau náðu öll markmiðum sínum og því var fagnað með kaffiveislu í síðastliðinn föstudag. Þar var líka gripið í spil og leikið sér, enda full ástæða til að fagna góðum árangri.

Áfram sjötti bekkur og áfram lestur!