Í október kom Marit Törnqvist og heimsótti unglingastig Glerárskóla. Hún lærði myndskreytingar í Gerrit Rietveld listaskólanum í Amsterdag og hefur myndskreytt fjölmargar bækur eftir Astrid Lindgren og hlotið ýmis verðlaun og viurkenningar á ferlinum. Á fyrirlestrinum rakti hún sögu sína og útskýrði hvernig myndsköpun hennar verður til. Hún sagði að það væri eins og að bein lína lægi frá hjarta hennar og yfir í höndina sem síðan stýrði penslinum eða pennanum. Myndirnar bara birtust á blaðinu án þess að hún hefði mikið fyrir því. Þetta fengum við að upplifa því á nokkrum sekúndum teiknaði hún mynd af barni eins auðveldlega og að drekka vatn. Lýsingar af samskiptum hennar við Astrid Lindgren voru stórskemmtilegar. . Marit sagði að Astrid væri ekkert ósvipuð sögupersónunni Línu Langsokk, mjög sérlunduð, lífleg en alvarleg um leið. Á myndunum má sjá hana að verki.