Foreldrafélag Glerárskóla stóð í dag fyrir sinni árlegu Vorhátíð og hún fór afar vel fram. Nýja torgið okkar á milli álmu A og D nýttist afar vel enda er það þeim töfrum gætt að þar er alltaf logn og gott veður hvaðan sem vindurinn blæs.
Vinir okkar úr löggunni komu í heimsókn og tóku virkan þátt í gleðinni. Löggunni fannst skemmtilegast að vera í snú snú, meðan aðrir heilluðust af hrossunum eða hoppukastalanum. Andlitsmálningin var mjög vinsæl og grilluðu pylsurnar toppuðu allt.
Við þökkum foreldrafélaginu kærlega fyrir okkur og við þökkum líka nemendum í 10. bekk fyrir þeirra vinnu á vorhátíðinni.