Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Litlu jólin og jólafrí nemenda

Í kvöld, fimmtudagskvöld, verður jólasamvera nemenda í 7. – 10. bekk. Nemendur mæta í heimastofurnar sínar klukkan 19:30 og þegar dagskránni lýkur kl. 21:00 eru nemendur þessara bekkja komir í jólafrí.

Litlu jól annarra nemenda verða á morgun, föstudag. Hátíðarstundin hefst kl. 8:15 hjá nemendum í 1. – 3. bekk. Þegar henni er lokið kl. 9:45 eru nemendurnir komnir í jólafrí. Frístund verður hins vegar opin að litlu jólunum loknum.

Nemendur í 4. – 6. bekk mæta á sín litlu jól kl. 9:30 og fara í jólafrí að þeim loknum klukkan 11:00.

Kennsla hefst síðan samkvæmt stundarskrá að loknu jólaleyfi föstudaginn 3. janúar 2020.