Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00..

Facebook síða Glerárskóla

Listaspírur og ljóðskáld

Listagyðjan hefur heldur betur snert nemendur Glerárskóla sem þessa dagana keppast við að yrkja ljóð eða skapa myndlistaverk.

Í tengslum við árshátíð skólans sem fram fer síðar í mánuðinum er efnt til ljóða- og myndlistasamkeppni meðal nemenda skólans. Afraksturinn mun skreyta ganga skólans árshátíðarvikuna gestum hennar til ánægju.

Sigurvegarar keppnanna verða krýndir á uppskeruhátíð árshátíðarinnar.