Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Lífsins gangur

Sumir af elstu nemendum Glerárskóla eru þegar ákveðnir í því hvað þeir ætla að taka sér fyrir hendur þegar þeir ganga héðan út í vor. Aðrir eru enn að pæla, eins og gengur.

Þessa dagana eru nemendur í níunda- og tíunda bekk að heimsækja framhaldsskóla bæði hér á Akureyri og í grenndinni til að kynnast því sem skólarnir eru að bjóða upp á og finna út hvar þeir vilja vera næstu vetur.

Meðfylgjandi myndir voru tekar þegar nemendur í níunda bekk heimsóttu Verkmenntaskólann á Akureyri fyrr í dag. Á sama tíma voru nemendur tíunda bekkjar í heimsókn í Menntaskólanum á Akureyri.