Það er fátt betra en byrja daginn með samsöng eins og við gerðum í morgun en þá stjórnaði Ivan Mendez söngsal.
Nemendur fylltu íþróttahúsið okkar og tóku hressilega undir með Ivani sem leiddi sönginn af mikilli fagmennsku. Byrjað var á Glerárskólasöngnum áður en hópurinn kyrjaði Þorparann sem Pálmi Gunnarsson gerði ódauðlegt hér um árið. Þá var komið að Þúsund hjörtum, lagi MC Gauta og að síðustu var, Lagið um það sem er bannað, sungið af mikilli innlifun.




