Um þessar mundir eru umsjónarkennarar að kalla á foreldra og forráðamenn nemenda á kynningarfundi hér í skólanum. Á fundunum er farið er yfir áherslur vetrarins í náminu, félagsstarfinu og öðru því sem tengist skólastarfinu með einum eða öðrum hætti.
Meðfylgjandi mynd var tekin á fundi með forráðamönnum nemenda í 10. bekk. Þar var meðal annars rætt um fyrirhugað skólaferðalag á vori komanda og fjáröflun til að standa straum af kostnaði við ferðina.