Glerárskóli

Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til miðvikudags, frá 07:45 til 14:30 á fimmtudögum og á föstudögum til klukkan 14:00.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Facebook síða Glerárskóla

Krakkarnir í 6. bekk eru Glerárskólameistarar í lestri skólaárið 2025–2026

 

Lestur er ein mikilvægasta undirstaða náms og þroska barna. Með góðri lestrarfærni efla nemendur m.a. orðaforða sinn, lesskilning og ímyndunarafl auk þess sem lestur styrkir sjálfstæði og sjálfstraust í námi. Í Glerárskóla leggjum við mikla áherslu á að hvetja nemendur til lesturs og gerum lestri hátt undir höfði í daglegu skólastarfi.

Hefð er fyrir því að halda reglulega lestrarátök í skólanum og er einu slíku nú nýlokið. Að þessu sinni stóð átakið yfir í heilan mánuð þar sem bekkir skólans kepptu sín á milli um að lesa í sem flestar mínútur. Nemendur skráðu lestrartíma sinn bæði heima og í skóla og sýndu mörg þeirra einstaklega mikinn dugnað og áhuga á lestri.

Að þessu sinni voru það nemendur í 6. bekk sem báru sigur úr býtum. Hver nemandi í 6. bekk las að meðaltali í um 811 mínútur á meðan lestrarátakið stóð yfir sem er frábær árangur. Krakkarnir í 6. bekk eru því Glerárskólameistarar í lestri skólaárið 2025–2026 en með sigrinum vörðu þau titilinn því þau stóðu einnig uppi sem sigurvegarar á síðasta skólaári. 

Við óskum 6. bekk innilega til hamingju með glæsilegan árangur og þökkum öllum nemendum fyrir þátttökuna og þann metnað sem þau sýndu í lestrinum.