Það hjólar enginn án þess að vera með hjálm, er það nokkuð? Hjálmurinn verndar höfuðið og getur hreinlega bjargað lífi okkar.
Þetta vitum við og krakkarnir í fyrsta bekk fengu í vikunnu kennslu um mikilvægi hjálmsins og hvernig á að stilla hann. Í heimsókn komu félagar í Kiwanisklúbbnum Kaldbaki færandi hendi. Hver og einn nemandi fékk splunkunýjan og flottan hjálm sem krakkarnir ætla alltaf að nota þegar þeir fara út að hjóla.
Á meðfylgjandi mynd má sjá krakkana hampa hjálmunum sínum.



