Glerárskóli

Sími: 461 2666
Skrifstofan er opin virka daga á starfstíma skólans
frá 07:45 til 15:00, frá mánudegi til fimmtudags en frá 07:45 til 14:00 á föstudögum.
Í fríum nemenda er skrifstofan opin virka daga frá 10:00 til 12:00.

Skóladagatal

Facebook síða Glerárskóla

Kínversk sendinefnd heimsótti fyrsta og annan bekk

Krakkarnir í 1. og 2. bekk hafa verið að læra kínversku í haust. Í 13 vikur kemur kennari í heimsókn sem kennir þeim kínversku í gegnum leik og söng. Þessar kennslustundir þykja spennandi og skemmtilegar.

Nú í vikunni kom kínversk sendinefnd í heimsókn til krakkanna, fulltrúar frá Ningbo háskólanum í Kína ásamt Magnúsi Björnssyni forstöðumanni Konfúsíusarstofnunarinnar.

Vel fór á með sendinefndinni og krökkunum sem meðal annars sungu lagið sívinsæla „Höfuð, herðar, hné og tær“ með kínverskum texta sem sannarlega féll í kramið hjá gestunum.